Fotbolti.net
01.08.26 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson

Grótta fær atvinnukonu frá Bandaríkjunum (Staðfest)

Grótta fær atvinnukonu frá Bandaríkjunum (Staðfest)
Canon

Mynd: Grótta

Kvennaboltinn
Grótta var að næla sér í liðsstyrk fyrir lokahnykk tímabilsins í toppbaráttu Lengjudeildar kvenna.
Shea Collins er 22 ára sóknarleikmaður sem kemur til félagsins úr röðum Spokane Zephyr sem leikur í USL Super League í Bandaríkjunum, sem er næstbesta deildin þar í landi.

Shea lék með háskólaliðum La Salle og James Madison áður en hún skrifaði undir hjá Spokane Zephyr og nú mun hún reyna fyrir sér í íslenska boltanum.

„Við erum afar ánægð með að fá Shea til liðs við okkur fyrir lokakafla tímabilsins. Hún býr yfir eiginleikum sem við teljum að muni styrkja sóknarleik okkar og við hlökkum til að sjá þau áhrif sem hún getur haft á liðið," segir Dominic Ankers, þjálfari meistaraflokks.

„Shea kemur til okkar með dýrmæta reynslu úr USL Super League í Bandaríkjunum og við erum stolt af því að hún hafi valið Gróttu sem sinn fyrsta áfangastað utan Bandaríkjanna. Við hlökkum til samstarfsins og erum spennt fyrir því sem fram undan er."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.