01.08.26 - 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Yan Diomande ekki í hóp: Segja að hann sé veikur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kantmaðurinn eftirsótti Yan Diomande var ekki í leikmannahópi RB Leipzig sem spilaði æfingaleik við SC Verl í dag.
Stjórnendur Leipzig voru spurðir út í málið og svöruðu að Diomande hafi ekki verið með vegna veikinda. Óljóst er hvort kantmaðurinn fari með hópnum í æfingaferð til Austurríkis síðar í dag.
Diomande hefur verið sterklega orðaður við stærstu félög Evrópu í sumar en virðist vera á leið til Real Madrid fyrir um 120 milljónir evra.
Hann er aðeins 19 ára gamall og var einnig eftirsóttur af Evrópumeisturum PSG, en verðmiðinn þótti alltof hár.

TENGT EFNI