Fotbolti.net
01.08.26 - 16:02
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Fram hafði betur í Þjóðhátíðarslagnum

Besta deildin: Fram hafði betur í Þjóðhátíðarslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV 1 - 2 Fram
0-1 Sigurður Arnar Magnússon ('17, sjálfsmark)
0-2 Freyr Sigurðsson ('43, víti)
1-2 Vicente Valor ('78, víti)
Rautt spjald: Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram ('81)
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Fram
ÍBV tók á móti Fram í Þjóðhátíðarleiknum í ár og náðu gestirnir forystunni á 17. mínútu, þegar Sigurður Arnar Magnússon varð fyrir því mikla óláni að setja boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá hægri kanti. Ægir Jarl Jónasson náði lúmskri snertingu á boltann og var Sigurður Arnar óheppinn að stýra honum í netið.

Það var ekki mikið að gerast í fyrri hálfleiknum þar sem bæði lið sýndu fína kafla með boltann, en Sigurður Arnar var aftur í aðalhlutverki á 43. mínútu. Í þetta sinn felldi hann Vuk Oskar Dimitrijevic innan vítateigs og skoraði Freyr Sigurðsson af vítapunktinum, svo staðan var 0-2 í leikhlé.

Eyjamenn reyndu að svara fyrir sig í síðari hálfleik en það var ekki mikill kraftur í sóknarleik liðsins. Spánverjinn Vicente Valor náði þó að minnka muninn með marki úr vítaspyrnu á 78. mínútu eftir að Israel García braut af sér.

Rúnar Kristinsson þjálfari Fram fékk beint rautt spjald nokkrum mínútum síðar en það kom ekki að sök. Hvorugu liði tókst að skora þrátt fyrir færi á báða bóga, svo lokatölur urðu 1-2.

Þetta er afar dýrmætur sigur fyrir Fram sem klifrar upp í annað sæti Bestu deildarinnar og er tveimur stigum fyrir ofan KR sem á leik til góða. Fram og KR eigast við í spennandi toppbaráttuslag í næstu umferð.

ÍBV situr eftir í neðri hlutanum, með 16 stig eftir 17 umferðir.
Besta deildin: Fram hafði betur í Þjóðhátíðarslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Fram hafði betur í Þjóðhátíðarslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.