Fotbolti.net
01.09.13 - 11:48
Daníel Freyr Jónsson

Chelsea kaupir Christian Atsu - Strax lánaður til Vitesse (Staðfest)

Christian Atsu.

Christian Atsu.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur gengið frá kaupum á vængmanninum Christian Atsu frá Porto. Talið er að Lundúnarliðið greiði um 3,5 milljónir punda fyrir hann.
Atsu er 21 árs gamall landsliðsmaður Ghana og skrifaði hann undir fimm ára samning. Hann kemur hinsvegar til með að eyða næsta árinu sem lánsmaður hjá Vitesse Arnheim, en þetta var tilkynnt á sama tíma og kaupin voru staðfest.

Hann lék alls 28 leiki með Porto á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark. Tímabilið áður lék hann sem lánsmaður hjá Rio Ave, en að auki á hann að baki 16 landsleiki með Ghana.

Með alla þá miðvallarleikmenn sem eru í leikmannahóp Chelsea í dag var ljóst að tækifæri hans yrðu af afar skornum skammti. Félagið ákvað því að nýta sér hið góða samstarf sem það hefur átt við Vitesse á undanförnum árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.