Fotbolti.net
01.09.13 - 18:02
Daníel Freyr Jónsson

Gareth Bale til Real Madrid (Staðfest)

Gareth Bale til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gareth Bale er genginn í raðir Real Madrid frá Tottenham. Þetta var staðfest með fréttatilkynningu á vefsíðum beggja liða.

Talið er að Real muni koma til með að greiða hæstu upphæð sem greitt hefur verið fyrir leikmann og skrifar hann undir sex ára samning hjá félaginu. Kaupverðið hefur ekki verið gefið út, en upphæðir á milli 87 og upp í 100 milljónir evra hafa verið nefndar.

Sem fyrr segir hafa þessi vistarskipti legið í loftinu í allt sumar. Samningaviðræður hafa hinsvegar dregist í langan tíma. Bale kom ekkert við sögu í þeim leikjum sem Spurs hefur spilað á tímabilinu og var svo komið að hann skrópaði á æfingum hjá liðinu í síðustu viku.
Hinn 24 ára gamli Bale var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Hann skoraði þá 21 mark í 33 deildarleikjum og var Tottenham afar drjúgur.

Bale gekk í raðir Tottenham frá uppeldisfélagi sínu Southampton árið 2007 og lék hann 106 deildarleiki með Lundúnarliðinu, en í öllum keppnum skoraði hann 55 mörk í 203 leikjum.

Þá hefur hann skorað 11 mörk í 41 leik með welska landsliðinu, en hann lék sinn fyrsta landsleik sumarið 2006 - þá einungis 16 ára gamall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.