Fotbolti.net
01.09.13 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson

Ki lánaður til Sunderland (Staðfest)

Ki lánaður til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ki Sung-Yueng hefur verið lánaður frá Swansea til Sunderland út tímabilið, en ákvæði er þó í lánssamningnum sem gerir Swansea kleift að endurkalla leikmanninn í janúar.

Ki er 24 ára frá Suður-Kóreu og er ellefti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Sunderland í sumar.
Ki er annar Kóreubúinn í Sunderland þar sem Ji Dong-Won er þegar samningsbundinn félaginu.

Ki kom fyrst til Bretlands árið 2009 þegar hann gekk til liðs við Celtic frá FC Seoul. Eftir góða frammistöðu í Skotlandi var hann keyptur til Swansea á 6 milljónir punda sumarið 2012.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.