Fotbolti.net
01.09.13 - 20:26
Alexander Freyr Tamimi

Martin Demichelis í Manchester City (Staðfest)

Martin Demichelis.

Martin Demichelis.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur staðfest kaupin á varnarmanninum Martin Demichelis frá Atletico Madrid, en hann mun klæðast treyju númer 26 hjá félaginu.
Þessi 32 ára gamli Argentínumaður mun nú starfa undir stjórn Manuel Pellegrini í þriðja skiptið, en leiðir þeirra lágu saman hjá River Plate og Malaga.

,,Ég er í skýjunum með að hafa gengið til liðs við City því ég er enn hungraður í árangur og vil bæta mig,“ sagði Demichelis.

,,Ég hef búið í Evrópu í 11 ár og þetta var frábært tækifæri fyrir mig til að spila í ensku úrvalsdeildinni með svona stóru liði. Það verður ekkert vandamál fyrir mig að aðlagast.“

Heimild: Síða Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.