Fotbolti.net
01.09.20 - 22:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ágúst snýr aftur í raðir ÍR (Staðfest)

Í leik með ÍR í fyrra.

Í leik með ÍR í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins í 2. deild karla. Liðið hefur endurheimt sóknarmanninn Ágúst Frey Hallsson aftur frá Gróttu, Ágúst kemur að láni út þessa leiktíð.
Ágúst gekk í raðir Gróttu fyrir tímabilið eftir að hafa skorað ellefu mörk í 25 leikjum á síðasta tímabili með ÍR. Ágúst kom við sögu í fjórum leikjum með Gróttu í sumar en tókst ekki að skora.

Hann lék sína fyrstu meistaraflokks leiki með Víkingi sumarið 2013 og hefur einnig leikið með Ægi, HK, Elliða og Leikni R. á sínum ferli.

ÍR er í fallbaráttu í 2. deild og er næsti leikur liðsins gegn Víði á heimavelli á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.