01.09.20 - 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Elí til Ólafsvíkur (Staðfest) - Byrjar hann á morgun?

Aron í marki Magna í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron í marki Magna í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafsvíkingar hafa leyst ákveðinn hausverk með því að fá Aron Elí Gíslason í sínar raðir. Aron Elí í markvörður en á dögunum misstu Ólsarar sinn aðalmarkvörð til Breiðabliks.
Brynjar Atli Bragason var lánaður til Ólafsvíkur frá Breiðabliki í vor og þótti hann staða sig með mikilli prýði milli stanganna hjá Víkingum. Breiðablik ákvað að kalla hann til baka og því leita Ólafsvíkingar til Arons. Konráð Ragnarsson, sem varði mark Skallagríms í fyrra, hefur verið varamarkvörður fyrir Brynjar og áhugavert að sjá hvort það verði Konráð eða Aron sem mun verja mark Ólsara það sem eftir lifir móts.

Aron Elí er á 22. aldursári og steig hann sín fyrstu skref hjá KA í meistaraflokki sumarið 2018. Árið 2019 lék hann með Magna í næstefstu deild en hefur ekkert leikið í sumar.
Aron á að baki einn U21 árs landsleik og er hann kominn með leikheimild með Víkingum. Næsti leikur Ólsara er gegn Fram á morgun.