01.09.20 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Cagliari fær Marin frá Ajax (Staðfest)

Razvan Marin

Mynd: Getty Images

Razvan Marin

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Cagliari hefur fengið rúmenska miðjumanninn Razvan Marin á láni frá Ajax út leiktíðina.
Marin er 24 ára gamall en hann spilaði tíu deildarleiki með Ajax á síðustu leiktíð og lék aðeins 17 leiki í heildina fyrir félagið.
Hann er nú mættur til Cagliari á lán út tímabilið og mun félagið kaupa hann frá Ajax næsta sumar.
Marin hefur skorað 1 mark í 21 leik fyrir rúmenska landsliðið en hann steig sín fyrstu skref í akademíu Gheorge Hagi áður en hann fór að spila fyrir félagið hans í Rúmeníu, Viitorul Constanta, sem hefur náð talsverðum árangri í heimalandinu.