01.09.20 - 11:35
Anton Freyr Jónsson
Emanuel Nikpalj í Þór (Staðfest)

Emanuel Nikpalj.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Emanuel Nikpalj.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Emanuel Nikpalj skrifaði í dag undir samning við Þór Akureyri en hann kemur til félagsins frá KF.
Nikpalj er 22 ára gamall miðjumaður sem kemur frá Króatíu en hann spilaði tvö tímabil með Ægi í 3. og 4. deildinni áður en hann gekk til liðs við KF fyrir sumarið.
Hann hefur spilað tólf leiki með KF í 2. deildinni í sumar og vakið athygli fyrir frammistöðu sína.
Nikpalj hefur nú samið við Þór og mun hann styrkja liðið í baráttunni í Lengjudeildinni.
Hann verður kominn með leikheimild er Þór mætir Vestra á Ísafirði á morgun en Þór er í 5. sæti deildarinnar með 20 stig eftir tólf umferðir.

Emanuel Nikpalj gekk í dag í raðir Þórs frá KF. Emy, eins og hann er kallaður, er 22 ára Króati sem spilar á miðjunni. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í 2.deildinni í sumar.
— Þór fótbolti (@Thor_fotbolti) September 1, 2020
Við bjóðum Emy velkominn í Þorpið! pic.twitter.com/K7h5kthLsi