Fotbolti.net
01.09.20 - 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eva Karen í Gróttu (Staðfest)

Eva í leik með Fjölni í fyrra.

Eva í leik með Fjölni í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Grótta hefur styrkt sig fyrir seinni hlutann í Lengjudeild kvenna því Eva Karen Sigurdórsdóttir er genginn í raðir félagsins.

Eva Karen var lykilmaður hjá Fjölni en sleit krossband fyrir um ári síðan og er að koma sér á völlinn aftur. Eva er fædd árið 2001 og lék fjóra leiki í deildinni i fyrra. Hún lék sinn fyrsta mótsleik sumarið 2016.
Grótta er þremur stigum frá 2. sæti deildarinnar á meðan Fjölnir situr í næstneðsta sætinu. Næsti leikur Gróttu er annað kvöld gegn Víkingi.

Af Grótta Knattspyrna á Facebook:

Magnús Örn Helgason þjálfari Gróttu fagnar komu Evu á Nesið:
„Eva Karen er mjög hæfileikarík fótboltakona og það er gaman að hún sé að snúa aftur eftir löng meiðsli. Hún leit á Gróttu sem góðan kost og við fögnum því sannarlega. Það er verkefni framundan að vinna sig upp í leikform - ég hef trú á því að Eva taki það með trompi og komi við sögu hjá okkur fljótlega."

„Ég er ánægð með að vera komin í þetta metnaðarfulla umhverfi sem er í Gróttu. Held að hérna geti ég bætt mig mikið sem leikmann. Ég hlakka til að komast aftur á völlinn, í nýjum lit, með þessum flotta hópi"
sagði Eva sjálf.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.