Fotbolti.net
01.09.20 - 15:11
Magnús Már Einarsson

Gabriel til Arsenal (Staðfest)

Gabriel til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur keypt varnarmanninn Gabriel Magalhaes frá Lille á 27 milljónir punda.

Gabriel gerði fimm ára samning við Arsenal en hann mun leika í treyju númer 6 hjá félaginu.

Gabriel hefur verið eftirsóttur í sumar en Napoli og Everton voru einnig í baráttunni um hann.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vonast til að Gabriel hjálpi til við að bæta varnarleik liðsins.

David Luiz og Willian, landar og liðsfélagar Gabriel, buðu hann velkominn til Arsenal eins og sjá má hér að neðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.