01.09.20 - 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KA lánar þrjá unga leikmenn (Staðfest)


Mynd: Raggi Óla


Mynd: Raggi Óla
KA hefur lánað þrjá unga og efnilega leikmenn frá sér nú rétt fyrir gluggalok. Leikmennirnir eru þeir Birgir Baldvinsson, Ottó Björn Óðinsson og Þorvaldur Daði Jónsson.
Birgir, sem fæddur er árið 2001, gengur í raðir Leiknis í Reykjavík. Birgir á að baki einn keppnisleik með KA og var það deildarleikur sumarið 2018.
Birgir, sem fæddur er árið 2001, gengur í raðir Leiknis í Reykjavík. Birgir á að baki einn keppnisleik með KA og var það deildarleikur sumarið 2018.
Ottó Björn er einnig fæddur árið 2001 og mun hann leika með Grenvíkingum í Magna það sem eftir lifir tímabils. Ottó lék tvo bikarleiki með KA í fyrra og svo fjóra deildarleiki sumarið 2019 með Dalvík/Reyni.
Þorvaldur Daði Jónsson er fæddur árið 2002 og er hann genginn í raðir Dalvíkur/Reynis sem leikur í 2. deild karla. Stöðuna í Lengju- og 2. deild má sjá hér að neðan.
Þorvaldur Daði Jónsson er fæddur árið 2002 og er hann genginn í raðir Dalvíkur/Reynis sem leikur í 2. deild karla. Stöðuna í Lengju- og 2. deild má sjá hér að neðan.
