Fotbolti.net
01.09.20 - 21:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KR lánar Þorstein og Valdimar í KV (Staðfest)

Þorsteinn Örn

Þorsteinn Örn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur lánað bakvörðinn Þorstein Örn Bernharðsson í venslafélag sitt, KV, út þessa leiktíð. KV er í 2. sæti 3. deildar og er félagið því í góðum möguleika á því að fara upp í 2. deild.

Þorsteinn er á 21. aldursári og var hann að láni hjá HK fyrri hluta tímabilsins. Þorsteinn kom við sögu í einum leik með HK og var það í Mjólkurbikarnum.
Þorsteinn var á bekknum í síðustu þremur leikjum KR en kom ekki við sögu. Hann hefur á sínum ferli komið við sögu í einum deildarleik með KR. Á síðustu leiktíð lék hann með Haukum og Þrótti.

Þorsteinn er ekki eini leikmaðurinn sem KR lánar til KV því 2002 módelið Valdimar Daði Sævarsson hefur einnig verið lánaður. Valdimar lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með KR nú í sumar þegar hann kom inn á í Mjólkurbikarnum gegn Vængjum Júpíters.

Næsti leikur KV er gegn KFG á morgun. Stöðuna í 3. deild má sjá hér að neðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.