01.09.20 - 20:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kwame Quee í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kwame Quee er genginn í raðir Reykjavíkur Víkinga að láni út þessa leiktíð. Kwame kemur frá Breiðabliki og er þetta í annað sinn sem hann er lánaður í Víkina. Kwame er fæddur árið 1996 og spilar iðulega á kantinum.
Hann var einnig að láni hjá Víkingum seinni hluta tímabilsins í fyrra og gerði góða hluti. Honum hefur ekki tekist að skora í þeim tíu deildarleikjum sem hann hefur komið við sögu í með Breiðabliki í sumar.

„Að tímabili loknu rennur samningur Kwame við Breiðablik út og því kveðjum við Blikar þennan skemmtilega leikmann.Hann lék alls 24 mótsleiki fyrir Breiðablik og skoraði í þeim þrjú mörk," er skrifað á Blikar.is.
Kwame kom fyrst til Íslands sumarið 2017 og lék með Ólafsvíkingum fyrstu tvö tímabilin áður en hann gekk í raðir Blika.
Næsti leikur Víkings er gegn Val þann 13. september.
Kwame kom fyrst til Íslands sumarið 2017 og lék með Ólafsvíkingum fyrstu tvö tímabilin áður en hann gekk í raðir Blika.
Næsti leikur Víkings er gegn Val þann 13. september.
Heimild: Blikar.is