01.09.20 - 22:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Málfríður Erna í Stjörnuna (Staðfest)

Málfríður Erna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Málfríður Erna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur styrkt sig fyrir lokasprettinn í Pepsi Max-deild kvenna því Málfríður Erna Sigurðardóttir er gengin í raðir félagsins frá Val.
Málfríður er þrautreyndur leikmaður sem hefur langlengst á sínum ferli leikið með Val. Hún kíkti í Kópavpoginn og lék þar árin 2015 og 2016 en annars hefur hún leikið með Val frá árinu 2000 þegar hún lék sína fyrstu leiki með Hlíðarendafélaginu.

Varnarmaðurinn lék á sínum tíma 33 landsleiki og skoraði í þeim tvö mörk. Málfríður hafði komið við sögu í sjö leikjum með Val í sumar.
Málfríður lék þá þrjá leiki í deildinni þegar Valur varð Íslandsmeistari síðasta sumar. Var það í sjöunda skiptið sem Málfríður er hluti af Íslandsmeistaraliði (sex sinnum Valur og einu sinni Breiðablik).
Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Selfossi næsta sunnudag.