01.09.20 - 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pernille Harder til Chelsea (Staðfest)

Harder við hlið Söru Bjarkar.

Mynd: Getty Images

Harder við hlið Söru Bjarkar.

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur fengið danska landsliðsfyrirliðann og nú fyrrum framherja Wolfsburg, Pernille Harder, í sínar raðir. Chelsea kaupir Harder af Wolfsburg og greiðir 250 þúsund pund fyrir.
Harder er 27 ára gömul og átti ár eftir af samningi við þýsku meistaranna. Hún skrifar undir þriggja ára samning við enska félagið.

Harder var hluti af liði Wolfsburg sem varð þýskur meistari fjögur ár í röð. Hún var liðsfélagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttir en leit í lægra haldi gegn Söru í úrslitaleik Meistaradeildarinnar nú á sunnudag.
Kærasta Harder, Magdalena Eriksson, er fyrirliði Chelsea og lyfti hún Samfélagsskildinum um liðna helgi. Upphæðin sem greidd er fyrir Harder er ein sú hæsta sem vitað er að hafa verið greitt fyrir leikmann í ensku Ofurdeildinni en óvíst er hvort þetta sé hæsta upphæðin vegna þess hversu oft kaupverðið er ekki gefið upp.