Fotbolti.net
01.09.20 - 12:40
Elvar Geir Magnússon

Reynsluboltar í Augnablik - Þorri Geir kominn í KFG (Staðfest)

Ellert Hreinsson.

Ellert Hreinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alls hafa sex leikmenn Smára í 4. deildinni skipt yfir í Augnablik í 3. deildinni. Augnablik er í þriðja sæti 3. deildarinnar en átta stig eru upp í 2. sætið.

Sóknarleikmaðurinn reynslumikli Ellert Hreinsson er kominn aftur í Augnablik. Ellert er 34 ára og er fyrrum leikmaður Stjörnunnar og Breiðabliks.

Varnarmaðurinn Kári Ársælsson, fyrrum fyrirliði Breiðabliks, er líka snúinn aftur í Augnablik. Kári er 35 ára.

Þá er Hlynur Hauksson, fyrrum leikmaður Þróttar, einnig genginn í raðir Augnabliks á ný. Auk þeirra fengu Ari Steinn Skarphéðinsson, Sölvi Guðmundsson og Viktor Örn Gunnarsson skipti.
Þorri Geir í KFG
Þá er miðjumaðurinn Þorri Geir Rúnarsson búinn að fá félagaskipti í KFG sem er í 4. sæti 3. deildarinnar.

Hinn 25 ára gamli Þorri hefur ekki komið við sögu í Pepsi Max-deildinni í sumar. Þorri var meiddur í byrjun tímabils en hann greindist síðan með kórónaveiruna.

„Ég heyrði að hann væri í þeim hugleiðingum eftir að hann fékk Covid að hætta í fótbolta," sagði Sverrir Mar, sérfræðingur í hlaðvarpsþættinum Ástríðan, í síðasta mánuði.

Þorri á 71 leik að baki í Pepsi Max-deildinni en hann varð Íslandsmeistari með Stjörnunni árið 2014 og bikarmeistari árið 2018.

Þriðjudagurinn 1. september, í dag, er síðasti dagur félagaskipta og frá og með 2. september eru öll félagaskipti, innanlands og til landsins óheimil.
Þorri Geir Rúnarsson.

Þorri Geir Rúnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.