01.10.20 - 20:09
Ívan Guðjón Baldursson
Deildabikarinn: Stoke sló Aston Villa úr leik

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
<b>Aston Villa 0 - 1 Stoke City</b>
0-1 Sam Vokes ('26)
0-1 Sam Vokes ('26)
Aston Villa er annað úrvalsdeildarfélagið sem er slegið úr leik í deildabikarnum í dag eftir að Brentford skellti Fulham.
Villa tók á móti Stoke City og skoraði Sam Vokes á 26. mínútu. Gestirnir frá Stoke leiddu eftir jafnan fyrri hálfleik.
Heimamenn voru með yfirhöndina í síðari hálfleik en áttu í erfiðleikum með að koma sér í færi og fann knötturinn ekki leiðina í netið.
Stoke gerði vel að halda út og tryggja sér glæstan sigur.