Fotbolti.net
01.10.20 - 22:44
Ívan Guðjón Baldursson

Enski kvennabikarinn: Man City vann Arsenal í undanúrslitum

Enski kvennabikarinn: Man City vann Arsenal í undanúrslitum
Canon

Mynd: Getty Images

Man City 2 - 1 Arsenal
1-0 Stephanie Houghton ('19)
1-1 Jordan Nobbs ('38)
2-1 Samantha Mewis ('41)
Manchester City er komið í úrslitaleik enska FA bikarsins eftir sigur gegn Arsenal í undanúrslitunum fyrr í kvöld.

Stephanie Houghton kom Man City yfir á nítjándu mínútu er liðin mættust á Academy Stadium í Manchester.

Jordan Nobbs jafnaði fyrir Arsenal undir lok fyrri hálfleiks en Samantha Mewis var snögg að koma City yfir á nýjan leik.

City var betra liðið í fyrri hálfleik og verðskuldaði forystuna. Seinni hálfleikurinn var rólegur þar sem Arsenal hélt boltanum án þess að skapa mikið.

City mætir Everton í úrslitaleik bikarsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.