Fotbolti.net
26.11.26 - 14:14
Elvar Geir Magnússon

Man Utd, Liverpool og Tottenham nota sömu lögmenn til að setja upp málaferli gegn Man City

Etihad leikvangurinn, heimavöllur Manchester City.

Etihad leikvangurinn, heimavöllur Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United, Liverpool og Tottenham nota sömu lögmannsstofu til að undirbúa málaferli gegn Manchester City fyrir brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Félögin þrjú hafa öll ráðið Wiggin lögmannsstofuna í London. Arsenal notar lögfræðinga sína, HFS Kramer, til að undirbúa sín eigin málaferli.
Samkvæmt heimildum Guardian hefur verið samvinna á milli félaganna sem nota Wiggin. Þau hafa einnig ráðið sömu greinendur til að meta mögulegar kröfur um skaðabætur.

Tottenham mun líklega gera stærsta kröfuna gegn City þar sem liðið missti fjórum sinnum af Meistaradeildarsæti.

Beðið er eftir niðurstöðu í því hvaða refsingu Manchester City mun fá eftir að hafa verið dæmt fyrir alvarleg brot á fjárhagsreglum.

Heimild: Guardian

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.