Fotbolti.net
26.11.26 - 14:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Freysi ekki til Wales fyrir grannaslaginn

Freysi ekki til Wales fyrir grannaslaginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Fótbolti.net greindi frá því í gær að Freyr Alexandersson yrði líklega við stjórnvölinn þegar Rosenborg tekur á móti Molde í stórleik á laugardag. Freyr er aðalskotmark Swansea sem er í þjálfaraleit.

Sky Sports greinir svo frá því í dag að bráðabirgðastjórinn Ashley Williams verði á hliðarlínunni þegar Swansea tekur á móti Cardiff í grannaslagnum, slagnum um Wales, á sunnudag. Swansea situr í 8. sæti ensku Championship-deildarinnar á meðan Rosenborg er í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Meiri líkur en minni á að Freyr stýri Rosenborg um helgina
TENGT EFNI

Meiri líkur en minni á að Freyr stýri Rosenborg um helgina

Williams hefur verið með þá Joe Allen, Leon Britton og Kris O'Leary í teymi sínu frá því að Vitor Matos fór til Strasbourg í síðustu viku.

Freyr hefur staðfest að Swansea hefur haft samband en hann verður á hliðarlínunni gegn Molde. Sky Sports segir þá að það sé möguleiki á því að hann klári tímabilið með Rosenborg.

Freyr vill ekki yfirgefa Rosenborg á erfiðum tímapunkti þar sem liðið er í harðri baráttu um Evrópusæti.

Swansea þarf að greiða Rosenborg fyrir Frey sem á þrjú ár eftir af samningi sínum við Rosenborg.

Fyrr í dag sagði Hjörvar Hafliðason frá því að Freyr vildi fá Davíð Snorra jónasson með sér til Swansea og samkvæmt heimildum Fótbolta.net vill Freyr taka aðstoðarmanninn Jonathan Hartmann með sér til Wales en þeir hafa unnið saman frá tíma Freys í Lyngby.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.