Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 01. október 2020 19:21
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Cuisance féll á læknisskoðun hjá Leeds
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Michaël Cuisance, miðjumaður FC Bayern, hafi fallið á læknisskoðun hjá Leeds United.

Cuisance er 21 árs gamall og býr yfir mikilli leikreynslu. Hann á 39 leiki að baki fyrir Borussia Mönchengladbach og 11 fyrir Bayern auk þess að hafa spilað 62 leiki fyrir yngri landslið Frakklands.

Sky greinir frá því að Cuisance hafi fallið á lyfjaprófi og Leeds hafi í kjölfarið hætt við skiptin. Leeds er talið hafa boðið 25 milljónir evra í miðjumanninn.

Cuisance var mættur til Leeds til að gangast undir læknisskoðun og kemur þessi niðurstaða öllum aðilum á óvart.
Athugasemdir
banner
banner
banner