Willum Þór Willumsson, leikmaður Go Ahead Eagles, stimplaði sig inn í hollensku deildina í kvöld með því að gera jöfnunarmarkið gegn Ajax.
Íslendingurinn gekk í raðir Go Ahead Eagles frá BATE í Hvíta-Rússlandi í sumar.
Hann hefur byrjað ágætlega með liðinu en gerði sitt fyrsta mark í kvöld og það gegn meistaraliði Ajax.
Willum var hægra megin á vellinum og færði sig inn í teig er fyrirgjöfin kom frá vinstri. Hann náði góðu skoti úr gríðarlega erfiðu færi og jafnaði fyrir Eagles.
Hægt er að sjá fyrsta mark hans hér fyrir neðan. Staðan er 1-1.
Sjáðu markið
Athugasemdir