01.11.13 - 20:03
Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn í þjálfarateymi Stjörnunnar (Staðfest)
Lýkur jafnframt ferli sínum sem leikmaður

Brynjar Björn í leik á Stjörnuvelli í sumar. Hann hefur gert þriggja ára samning við Garðabæjarliðið um að verða aðstoðarþjálfari. Hann verður ekki áfram leikmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar en þetta staðfesti Almar Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar félagsins við Fótbolta.net í kvöld. Brynjar Björn mun ekki verða leikmaður hjá Stjörnunni og leggur því skóna á hilluna sem leikmaður.
Rúnar Páll Sigmundsson tók við þjálfun liðsins af Loga Ólafssyni í síðasta mánuði eftir að hafa verði aðstoðarmaður hans í fyrra. Brynjar Björn tekur nú við hlutverki Rúnars Páls í þjálfarateyminu en þar er einnig fyrir Henrik Bödker og verður áfram.
,,Brynjar Björn verður í þjálfarateyminu næstu þrjú árin,\" sagði Almar við Fótbolta.net í kvöld. ,,Hann verður í teyminu hans Rúnars ásamt Bödker og mun hafa yfirumsjón með þjálfun 2. flokks karla og þá sem eru á landamærum þess að koma í meistaraflokkinn.\"
Brynjar Björn kom til KR frá Reading fyrir ári síðan en hann hafði verið byrjaður í þjálfarastörfum á Englandi áður en hann kom heim.
,,Við erum að tryggja okkur mann með mikla reynslu og efnilegan þjálfara sem hefur aflað sér réttinda og kynnt sér þjálfun úti,\" sagði Almar. ,,Við erum með mikið af strákum sem þurfa góða þjálfara og reynslumikla menn sem hjálpa sér áfram,\" bætti hann við.