Fotbolti.net
01.11.13 - 21:59
Magnús Már Einarsson

Einar Már í Fram (Staðfest)

Einar Már í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Fram hefur fengið kantmanninn Einar Má Þórisson til liðs við sig frá KV en hann skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning hjá bikarmeisturunum.
Hinn 22 ára gamli Einar Már er uppalinn í KR og varð hann m.a. íslands- og bikarmeistari með 2. flokki KR.

Einar Már gætur bæði spilað á vinstri og hægri kanti en hann hefur leikið með KV undanfarin tvö tímabil eftir að hafa áður leikið eitt ár með Hamar.

Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Fram frá KV síðan að tímabilið kláraðist en Einar Bjarni Ómarsson fór einnig sömu leið á dögunum.

„Ég fylgdist með Einar Má þegar hann byrjaði að æfa með meistaraflokki KR á sínum tíma. Það fór ekkert á milli mála að þar fór mikið efni,\" sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari Fram.

,,Hann náði hins vegar ekki í gegn en hann virðist hafa þroskast mikið með KV á síðustu tveimur árum og það er ánægjulegt. Einar Már er beinskeittur leikmaður sem er óhræddur að taka menn á og hann getur gefið fyrir og skotið bæði með hægri og vinstri fæti.\"

Einar Már er áttundi leikmaðurinn sem Bjarni fær til Fram en allir eru þeir 24 ára og yngri. Hins vegar hafa tíu leikmenn horfið á braut frá síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.