Fotbolti.net
01.11.13 - 15:17
Elvar Geir Magnússon

Halldór Hermann í Val (Staðfest)

Halldór Hermann í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Halldór Hermann Jónsson hefur gert tveggja ára samning við Val eða út tímabilið 2015. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Val.
Halldór er 29 ára reynslumikill leikmaður sem hefur leikið 278 leiki í deild og bikar, fyrst með Fjarðarbyggð og síðan með Fram frá árinu 2008.

„Halldór Hermann er baráttujaxl og vinnusamur leikmaður, sem er gulls ígildi. Það er mikið ánægjuefni að Halldór hafi ákveðið að ganga til liðs við Val og bjóðum við hann hjartanlega velkominn á Hlíðarenda,\" segir í tilkynningunni frá Val.

Halldór fékk ekki nýjan samning hjá Fram en hann er annar leikmaðurinn sem fer frá Fram í Val síðan tímabilinu lauk. Áður hafði Magnús Gylfason krækt í Kristin Inga Halldórsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.