01.11.13 - 16:03
Elvar Geir Magnússon
Kristján Finnbogason í FH (Staðfest)

Kristján Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Kristján Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Hinn reynslumikli Kristján Finnbogason hefur samið við FH og mun vera varamarkvörður fyrir Róbert Örn Óskarsson á næsta tímabili. Þetta staðfesti Kristján í samtali við Fótbolta.net.
Kristján er 42 ára en hann mun einnig aðstoða við markmannsþjálfun hjá félaginu.
Kristján er 42 ára en hann mun einnig aðstoða við markmannsþjálfun hjá félaginu.
Hann hefur undanfarin tvö ár verið í þjálfarateymi Fylkis ásamt því að vera varamarkvörður liðsins.
Áður lék hann fyrir Gróttu og á fjölmarga leiki að baki fyrir KR þar sem hann lék í mörg ár. Auk þess lék hann tvö ár með ÍA. Hann hefur leikið 20 A-landsleiki.
Áður lék hann fyrir Gróttu og á fjölmarga leiki að baki fyrir KR þar sem hann lék í mörg ár. Auk þess lék hann tvö ár með ÍA. Hann hefur leikið 20 A-landsleiki.
