Fotbolti.net
01.11.21 - 13:47
Elvar Geir Magnússon

Aron Kristófer í KR (Staðfest)

Aron Kristófer Lárusson.

Aron Kristófer Lárusson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Kristófer Lárusson hefur yfirgefið ÍA og gengið í raðir KR en þetta er tilkynnt á samfélagsmiðlum Vesturbæjarfélagsins.

Aron er 23 ára gamall og getur leikið sem bakvörður og sem kantmaður. Hann gerir fjögurra ára samning við KR.
„Aron hefur spilað með ÍA, Þór Ak., og Völsungi. Afi hans er Sigurður Lárusson en pabbi Lárus Orri Sigurðsson. KR bíður Aron hjartanlega velkominn á Meistaravelli," segir á Instagram síðu KR.

Aron gekk í raðir ÍA frá Þór Akureyri 2019. Alls lék hann nítján leiki í Pepsi Max-deildinni á liðnu sumri.

„Við erum að stækka hópinn okkar og við munum kannski skoða fleiri leikmenn. Við sjáum fyrir okkur lengra tímabil með fleiri leikjum á næsta tímabili," segir Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í síðasta mánuði.

Komnir í KR:
Aron Snær Friðriksson frá Fylki
Sigurður Bjartur Hallsson frá Grindavík
Stefan Alexander Ljubicic frá HK
Aron Kristófer Lárusson frá ÍA
Alex Freyr Hilmarsson frá Kórdrengjum (var á láni)
Oddur Ingi Bjarnason frá Grindavík (var á láni)

Farnir
Birgir Steinn Styrmisson til Ítalíu
Guðjón Orri Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.