Fotbolti.net
01.11.21 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Höttur/Huginn fær Almar Daða (Staðfest)

Almar Daði Jónsson.

Almar Daði Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Almar Daði Jónsson hefur skrifað undir samning við Hött/Huginn og leikur með liðinu í 2. deild á næsta ári, hann kemur frá Leikni Fáskrúðsfirði.

Höttur/Huginn vann 3. deildina á liðnu sumri.
„Almar ætti að vera öllu knattspyrnufólki á Austurlandi vel kunnur en hann hefur leikið yfir 200 leiki mest með Leikni en einnig með Fjarðabyggð og skorað í þeim fjölda marka," segir í tilkynningu félagsins.

„Hann kemur með reynslu og gæði í hópinn okkar en hann getur leyst stöður framar- og aftarlega á vellinum. Almar sem er 28 ára hefur verið búsettur á Egilsstöðum ásamt fjölskyldu í nokkur ár og loksins kom að því að hann tekur slaginn með okkur."

Á dögunum var Björgvin Stefán Pétursson, fyrrum leikmaður Leiknis Fáskrúðsfirði, ráðinn aðstoðarþjálfari Hattar/Hugins. Brynjar Árnason er aðalþjálfari liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.