Fotbolti.net
01.11.21 - 09:45
Elvar Geir Magnússon

Tottenham búið að reka Nuno (Staðfest)

Nuno Espirito Santo er búinn að missa starfið hjá Tottenham.

Nuno Espirito Santo er búinn að missa starfið hjá Tottenham.

Canon

Mynd: EPA

Nuno Espirito Santo hefur verið rekinn sem stjóri Tottenham, aðeins fjórum mánuðum eftir að hann tók við starfinu.

Eftir 3-0 tap gegn Manchester United á laugardag hélt Daniel Levy stjórnarformaður krísufund með háttsettustu aðilum félagsins. Spilamennska liðsins hafði skapað áhyggjur og arfadöpur frammistaða gegn United reyndist síðasta hálmstrá Nuno.

Leikstíll hans þótti varnarsinnaður og sköpunarmáttur liðsins var afskaplega lítill. Hann náði litlu út úr stjörnuleikmanninum Harry Kane sem er aðeins með eitt úrvalsdeildarmark á tímabilinu.
Talið er að Ryan Mason gæti aftur tekið við til bráðabirgða en hann stýrði liðinu tímabundið eftir að Jose Mourinho var rekinn.

Nuno, sem var stjóri Wolves, var ráðinn til Tottenham í sumar en margir kostir höfðu þá gefið félaginu neitun.

Antonio Conte er sagður á blaði Tottenham, Sergio Conceicao stjóri Porto og Graham Potter stjóri Brighton hafa einnig verið nefndir og þá segir Mirror að félagið muni ræða aftur við Paulo Fonseca, fyrrum stjóra Roma, sem var nálægt því að taka við liðinu í sumar.

„Ég veit hversu mikið Nuno og hans aðstoðarmenn vildu ná árangri og það er leiðinlegt að þurfa að taka þessa ákvörðun. Nuno er sannur herramaður og verður alltaf velkominn hér. Við viljum þakka honum og hans aðstoðarmönnum og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni," segir Fabio Paratici, yfirmaður fótboltamála, í yfirlýsingunni þar sem Tottenham staðfestir brottrekstur Nuno.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.