Fotbolti.net
01.11.26 - 10:25
Brynjar Ingi Erluson

Fermin svarar orðrómunum um Man Utd

Fermin vill klára ferilinn hjá Barcelona

Fermin vill klára ferilinn hjá Barcelona

Canon

Mynd: EPA

Fermin Lopez, leikmaður Barcelona, hefur tjáð sig um orðróma þess efnis að hann sé á leið til Manchester United á Englandi.
Man Utd og Chelsea eru sögð hafa mikinn áhuga á Fermin, sem hefur fengið takmarkaðan spiltíma hjá Börsungum á tímabilinu.

Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið rúmar 800 mínútur hefur hann verið í svakalegu formi og komið að tólf mörkum í þeim þrettán leikjum sem hann hefur spilað.

Fermin, sem er einnig í spænska landsliðinu, hefur hins vegar vísað því á bug að hann sé á förum frá Barcelona og segir ekkert hæft í fréttum um möguleg félagaskipti til United.

„Orðrómar um Man Utd? Ég velti svona fréttum ekkert fyrir mér. Ég vil vera hér hjá Barcelona eins lengi og ég get og vonast til að enda ferilinn hjá félaginu,“ sagði Fermin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.