Fotbolti.net
01.11.26 - 11:08
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu atvikið: Rotaði leikmann með sparki og sá rautt

Sjáðu atvikið: Rotaði leikmann með sparki og sá rautt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óhugnanlegt atvik átti sér stað í viðureign Albacete og Sabadell í spænsku B-deildinni í gær.
Albacete var með 2-0 forystu gegn Sabadell undir lok fyrri hálfleiks þegar stórhættulegt atvik átti sér stað.

Jose Corpas, leikmaður Albacete, reyndi að ná til hás bolta með hálfgerðri klippu, en hitti ekki boltann og sparkaði þess í stað af miklu afli í gagnaugað á Quadri Liameed, leikmanni Sabadell.

Nígeríumaðurinn missti samstundis meðvitund og féll í grasið. Dómarinn var ekki lengi að fara í rassvasann og draga upp rauða spjaldið enda um gríðarlega hættulegan leik að ræða hjá Corpas.

Liameed lá meðvitundarlaus í nokkrar sekúndur áður en hann rankaði við sér. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús til frekari rannsókna, en atvikið má sjá hér fyrir neðan.

Fyrir áhugasama þá lauk leiknum með 2-1 sigri Albacete sem var að vinna annan leik sinn á tímabilinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.