01.12.13 - 16:27
Daníel Freyr Jónsson
Martin Jol rekinn frá Fulham - Meulensteen tekur við (Staðfest)

Martin Jol.

Mynd: Getty Images

Rene Meulensteen.

Mynd: Getty Images

Martin Jol.

Mynd: Getty Images
Hollendingnum Martin Jol hefur verið sagt upp störfum hjá úrvalsdeildarliði Fulham. Samlandi hans, Rene Meulensteen, mun taka við af Jol.
Brottreksturinn kemur lítið á óvart þar sem Fulham hefur gengið afar illa á tímabilinu og hefur tapað fimm leikjum sínum. 3-0 ósigur gegn West Ham í gær fyllti mælinn fyrir forráðamenn liðsins.

Liðið hefur 10 stig úr 13 leikjum og situr í 18. sæti deildarinnar.
Meulensteen er hvað mest þekktastur fyrir að hafa verið lykilmaður í þjálfarateymi Sir Alex Ferguson hjá Manchester United. Þar var hann í miklum metum og kom það því mörgm á óvart þegar David Moyes ákvað að hafa hann ekki í sínu teymi.
Hann tók við rússneska liðinu Anzhi Makhachkala í sumar en endist einungis í örfáa daga þar. Fyrir örfáum vikum var hann síðann ráðinn í þjálfarateymi Jol en er nú tekinn við liðinu.