Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. desember 2019 20:37
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Einkunnir Leicester og Everton: Iheanacho maður leiksins
Kelechi Iheanacho var besti maður vallarins.
Kelechi Iheanacho var besti maður vallarins.
Mynd: Getty Images
Leicester vann frábæran sigur á Everton í kvöld þar sem sigurmarkið kom á loka sekúndum leiksins.

Lokatölur voru 2-1, þar sem Richarlison kom Everton yfir en Jamie Vardy jafnaði fyrir Leicester og það var svo Kelechi Iheanacho sem tryggði þeim sigurinn.

Iheanacho skoraði ekki bara sigurmarkið heldur lagði hann einnig upp jöfnunarmarkið og það kemur því engum á óvart að hann var valinn maður leiksins hjá Sky Sports.

Einkunnir Leicester: Schmeichel (6), Ricardo (7), Soyuncu (6), Evans (6), Chilwell (6), Ndidi (6), Tielemans (6), Maddison (6), Barnes (6), Perez (5), Vardy (7).

Varamenn: Iheanacho (8).

Einkunnir Everton: Pickford (6), Digne (6), Sidibe (7), Holgate (5), Keane (6), Mina (6), Davies (5), Sigurðsson (6), Iwobi (6), Richarlison (7), Calvert-Lewin (6).

Varamenn: Schneiderlin (5), Kean (6).

Maður leiksins: Kelechi Iheanacho.
Athugasemdir
banner
banner
banner