Emmanuel Petit, fyrrum leikmaður franska landsliðsins, fer ekki fögrum orðum um brasilísku stjörnuna Neymar í viðtali við RMC Sport.
Neymar hefur verið mikið í umræðunni eftir hegðun hans í sumar þar sem hann reyndi að komast frá Paris Saint-Germain og aftur til Barcelona.
Petit, sem lék meðal annars með Arsenal og Chelsea á Englandi, er óánægður með hegðun Neymars en hann segir að andrúmsloftið hjá PSG hljóti að vera afar slakt.
„Neymar spilar aðeins fyrir sjálfan sig. Prófaðu að setja þig í spor annarra leikmanna hjá PSG sem þurfa að vera í kringum þennan náunga hjá PSG, leikmaður sem drullar yfir félagið og stuðningsmenn þess. Hann sýnir þeim enga virðingu," sagði Petit.
Athugasemdir