Kolbeinn á förum frá AIK

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Sigþórsson er á förum frá AIK í Svíþjóð eftir að tímabilinu lýkur þar um næstu helgi. Expressen í Svíþjóð greinir frá.
Kolbeinn kom til AIK í fyrra og gerði samning út árið 2021 en nú hafa aðilar samið um að hann fari annað eftir tímabilið.
Hinn þrítugi Kolbeinn skoraði þrjú mörk í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabli en hann er ekki kominn á blað í 18 leikjum á þessu tímabili.
Kolbeinn kom til AIK eftir að hafa jafnað sig af erfiðum meiðslum sem héldu honum frá keppni í langan tíma.
Kolbeinn er ásamt Eiði Smára Guðjonsen markahæsti leikmaður Íslands frá upphafi með 26 mörk með landsliðinu.