Paris Saint-Germain fékk slæmar fréttir í gær fyrir viðureign liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni á morgun.
PSG heimsækir Man Utd í fimmtu umferð riðlakeppninnar og þurfa líklega á sigri til að halda öðru sæti riðilsins.
Enska liðið vann 2-1 sigur á því franska í fyrri leik liðanna á Old Trafford og er í efsta sæti riðilsins með níu stig.
Fjórir mikilvægir leikmenn verða ekki með PSG í leiknum eða þeir Julian Draxler, Juan Bernat, Mauro Icardi og Pablo Sarabia.
Draxler og Bernat hafa verið að glíma við meiðsli í dágóðan tíma en Icardi og Sarabia meiddust eftir leik helgarinnar í deild.
Líklegt er því að framherjinn Moise Kean byrji upp á topp en hann er í láni hjá PSG frá Everton.
Athugasemdir