Reece James, leikmaður Chelsea, blandaði sér í gær inn í umræður sem hafa skipt fótboltaheiminum í tvennt síðustu 10-15 árin eða svo.
Hvor er betri Cristiano Ronaldo eða Lionel Messi?
Hvor er betri Cristiano Ronaldo eða Lionel Messi?
James svaraði spurningum aðdáenda á samfélagsmiðlum og sneri ein spurningin að þessu umræðuefni sem er kannski orðið ansi þreytt í augum margra.
Messi og Ronaldo eru tveir af bestu fótboltamönnum sögunnar en að mati James þá er Ronaldo betri.
Það eru ekki allir sammála þessari skoðun en Daily Mail fjallar um það að James hafi fengið hörð viðbrögð við þessari skoðun sinni.
James nefndi líka þrjá erfiðustu leikmennina sem hann hefur spilað á móti á sínum ferli, en Ronaldo var ekki í þeim flokki. Hann nefndi Sadio Mane, Rafael Leao og Vinicius Junior.
Ronaldo. https://t.co/sZ3wFs0pU3
— Reece James (@ReeceJames) November 30, 2022
Athugasemdir