02.01.14 - 11:21
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Börkur til GAIS (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Ásgeir Börkur Ásgeirsson hefur gengið til liðs við sænska félagið GAIS en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Ásgeir Börkur lék með Sarpsborg í Svíþjóð á síðasta ári en það var hans fyrsta reynsla í atvinnumennsku erlendis.
Hann gekk svo til liðs við sitt félag, Fylki, á miðju tímabili í sumar og reif liðið upp úr lægð þegar hann spilaði síðustu 9 leiki tímabilsins með liðinu.
Samningur Ásgeirs Barkar við Fylki rann út á dögunum og hann stefndi á að fara aftur út í atvinnumennsku. Sá draumur hefur nú ræst eftir að hann samdi við GAIS sem leikur í næstefstu deild í Svíþjóð.
Á heimasíðu félagsins er sagt frá því að Ásgeir Börkur sé þungarokkari og að leikstíll hans minni á leikstíl Gennaro Gattuso á vellinum.
,,Hann er leikmaður sem öll lið þurfa á að halda,\" sagði Tomas Askebrand þjálfari GAIS.