Fotbolti.net
02.01.14 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ricardo Quaresma til Porto (Staðfest)

Ricardo Quaresma til Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska stórliðið Porto hefur samið við portúgalska vængmanninn Ricardo Quaresma en hann kemur á frjálsri sölu til félagsins.
Quaresma, sem er 30 ára gamall, var síðast á mála hjá Al Ahli en hann lék þá einnig með Besiktas, Internazionale, Chelsea og Barcelona meðal annars.

Hann kannast vel við sig hjá Porto en hann lék með liðinu frá árinu 2004 til 2008. Það tóku tíu þúsund stuðningsmenn á móti honum á opinni æfingu félagsins í gær en hann var afar vinsæll hjá liðinu áður en hann fór.

Porto er sem stendur í öðru sæti deildairnnar með jafnmörg stig og topplið Sporting og lið Benfica sem er í þriðja sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.