Fotbolti.net
02.01.16 - 10:00
Arnar Geir Halldórsson

Sam Johnstone til Preston (Staðfest)

Sam Johnstone

Sam Johnstone

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur lánað markvörðinn Sam Johnstone til enska B-deildarliðsins Preston North End.
Johnstone þekkir vel til í Preston en þar er hann fæddur. Hann lék einnig með liðinu á síðustu leiktíð við góðan orðstír og hjálpaði liðinu að komast upp úr C-deildinni,

Þessi 22 ára gamli markvörður hefur enn ekki leikið aðalliðsleik fyrir Man Utd en hann var varamarkvörður fyrir Sergio Romero í upphafi leiktíðarinnar þegar David De Gea var geymdur utan hóps vegna yfirvofandi félagaskipta til Real Madrid sem aldrei varð að.

Johnstone er löglegur með Preston í dag en liðið mætir Rotherham. Fyrir hjá Preston er fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, Chris Kirkland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.