Fotbolti.net
02.01.22 - 19:04
Brynjar Ingi Erluson

Hallbera Guðný í Kalmar (Staðfest)

Hallbera Guðný Gísladóttir spilar áfram í Svíþjóð

Hallbera Guðný Gísladóttir spilar áfram í Svíþjóð

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Íslenska landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir er gengin í raðir Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni. Félagið tilkynnir komu hennar á samfélagsmiðlum í dag.
Hallbera, sem er 35 ára, á glæstan feril að baki bæði með félagsliðum og landsliði, en hún lék með AIK í sænsku deildinni á síðustu leiktíð.

Hún ákvað að skoða sig um eftir tímabilið og er nú gengin í raðir nýliða Kalmar.

Kalmar lenti í 2. sæti B-deildarinnar á síðasta tímabili og tryggði sér þar með þátttökurétt í efstu deild.

Þetta er fjórða liðið sem hún spilar með í Svíþjóð en hún hefur einnig leikið fyrir Piteå IF, Djurgården og auðvitað AIK. Hún hefur spilað fyrir ÍA, Breiðablik og Val á Íslandi.

Hallbera á 123 landsleiki að baki fyrir A-landslið Íslands og skorað þrjú mörk. Þá hefur hún farið þrisvar sinnum á Evrópumótið og væntanlega á leið á sitt fjórða stórmót í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.