02.01.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HK fær markvörð sem hefur áður spilað á Íslandi (Staðfest)

Audrey Baldwin.

Mynd: HK

Audrey Baldwin.

Mynd: HK

HK hefur bætt við sig bandarískum markverði fyrir næsta sumar. Markvörðurinn heitir Audrey Baldwin og semur hún við Kópavogsfélagið til tveggja ára.
Audrey er reynslumikill markvörður frá Bandaríkjunum sem hefur spilað víða, meðal annars í Meistaradeild kvenna með Apollon frá Kýpur og Hajvalia frá Kosóvó. Hún hefur einnig leikið í Portúgal, Danmörku, Ísrael og Frakklandi.
Markvörðurinn hefur áður spilað á Íslandi. Hún lék með HK/Víkingi sumarið 2019 og þá hefur hún líka spilað fyrir Keflavík og Fylki.
Audrey mun starfa hjá knattspyrnudeild HK og koma að þjálfun og styrktarþjálfun í yngri flokkum félagsins.
Guðni Þór Einarsson þjálfari liðsins segir komu Audrey mikilvæga fyrir uppbyggingastarf sem á nú sér stað í HK. „Audrey kemur með reynslu og sterkan karakter í okkar unga og efnilega hóp. Við gerum kröfur á að lið okkar verði samkeppnishæft í efri hluta deildarinnar á næstu árum og teljum okkur hafa nælt í öflugan markvörð í Audrey."
HK hafnaði í áttunda sæti Lengjudeildarinnar síðasta sumar og bjargaði sér á markatölunni.