02.01.22 - 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungur Þjóðverji til liðs við Gróttu (Staðfest)

Mynd: Grótta Knattspyrna

Mynd: Grótta Knattspyrna

Hinn 18 ára gamli Benjamin Friesen er genginn til liðs við Gróttu og gerir samning út tímabilið 2022.
Hann kemur frá JFV Nordvest í heimalandinu en hann dvaldi um stund á Seltjarnarnesinu og kynntist góðu fólki þar. Hann hefur nú gert samning við félagið og spilar með meistaraflokknum næsta sumar.
Grótta er því byrjað að styrkja sig fyrir sumarið en liðið endaði í sjötta sæti í Lengjudeildinni síðasta sumar og spilar því áfram í næst efstu deild næsta sumar.
„Eftir að hafa átt frábæran tíma síðasta sumar hlakka ég mikið til að koma aftur og gefa allt til að spila með þessu liði. Allir hjá Gróttu hafa stutt mig mjög vel og látið mér líða eins og heima hjá mér. Markmið mitt er að verða atvinnumaður í fótbolta og með Chris, þjálfurunum og leikstíl liðsins tel ég að það að vera hér gefi mér mikla möguleika á að ná því markmiði," sagði Friesen í samtali við Gróttu.