02.02.13 - 12:30
Daníel Freyr Jónsson
Willian fór til Anzhi á metfé (Staðfest)

Willian.

Mynd: Getty Images

Willian.

Mynd: Getty Images
Hinn brasilíski Willian er genginn í raðir Anzhi Makhachkala frá Shaktar Donetsk fyrir 35 milljónir evra.
Hann skrifaði undir langtímasamning hjá rússneska félaginu, en þessi öflugi miðjumaður var nálægt því að ganga í raðir Chelsea síðasta sumar. Samningar tókust hinsvegar ekki á milli Chelsea og Shakhtar.
Hjá Shakhtar lék hinn 24 ára gamli Willian 221 leiki og skoraði 37 mörk eftir að hafa komið til félagsins frá Corinthians í heimalandinu árið 2007.
Willian fær treyju númer 10 hjá Anzhi og er fjórði Brasilíumaðurinn í herbúðum félagsins.
Með félaginu leika aðrir þekktir leikmenn og má þar á meðal nefna Samuel Eto\'o og Lass Diarra.