02.02.13 - 14:17
Ívan Guðjón Baldursson
Zeman rekinn frá Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það er staðfest að Roma er búið að reka Zdenek Zeman eftir 4-2 tap á heimavelli gegn Cagliari á föstudagskvöldið.
Aurelio Andreazzoli tekur við taumunum á meðan Roma leitar að nýjum þjálfara út tímabilið.

Andreazzoli er 59 ára gamall þjálfari sem starfaði með Luciano Spalletti, Vincenzo Montella og Luis Enrique hjá Roma áður en Zeman tók við.
Yfir 500 stuðningsmenn Roma voru eftir á leikvanginum eftir tapið gegn Cagliari og mótmældu því að Zeman fengi að halda stjórasæti sínu.
Talið er að Roma hafi reynt að ráða Laurent Blanc en hann hafi neitað, þá er talið líklegast að Marco Giampaolo eða Walter Novellino taki við stjórn liðsins út tímabilið.
Fyrr í vikunni hafði stjórn Roma gefið út stuðningsyfirlýsingu þar sem stjórnin sagðist styðja þjálfarann þrátt fyrir slæmt gengi. Fréttina má sjá hér.

Heimild: Football-Italia