02.02.16 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Alvaro Pereira til Getafe (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Angel Torres, eigandi Getafe CF í spænsku deildinni, staðfesti það í gær að Alvaro Pereira væri genginn til liðs við félagið.
Pereira er úrúgvæskur bakvörður sem á 75 landsleiki að baki og hefur leikið fyrir lið á borð við Porto og Inter.

Pereira er leikmaður Estudiantes de La Plata í Argentínu og kemur til Getafe á lánssamning sem gildir út tímabilið.
Getafe er í 11. sæti spænsku deildarinnar og gæti Pereira spilað sinn fyrsta leik gegn Malaga á föstudaginn.
Pereira gerði garðinn frægan hjá Porto þar sem hann var lykilmaður er félagið vann portúgölsku deildina tvisvar og Evrópudeildina einu sinni á þremur árum.