02.02.16 - 20:14
Alexander Freyr Tamimi
Arnar Darri í Þrótt (Staðfest)

Arnar Darri Pétursson er genginn til liðs við Þrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið markvörðinn Arnar Darra Pétursson í sínar raðir frá Stjörnunni og skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á vefsíðu Þróttar.
Arnar Darri er uppalinn hjá Stjörnunni en lék eitt tímabil með Víkingi Ólafsvík auk þess sem hann spilaði í Danmörku og Noregi. Hann er 24 ára gamall og á að baki 20 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Arnar Darri er stór, sterkur og öflugur markvörður, sem getur átt langan og farsælan feril framundan í knattspyrnu, ef hann heldur rétt á spöðunum,\" sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar við vefsíðu félagsins.
„Hann hefur rétt hugarfar og er afskaplega duglegur. Með tilkomu Arnars Darra fá Trausti Sigurbjörnsson og Sindri Geirsson verðuga samkeppni um markvarðarstöðuna og þannig vil ég hafa hlutina, að tveir til þrír leikmenn keppi um allar stöður í byrjunarliðinu.\"
Sjálfur er Arnar Darri í skýjunum með félagaskiptin.
„Þróttur kemur til leiks í efstu deild næsta sumar með bráðungan og efnilegan leikmannahóp. Liðið er að styrkja sig mikið frá síðasta ári og þjálfarateymið lítur á mig sem mikilvægan þátt í því ferli. Ég ætla að standa undir því trausti og hlakka til að taka virkan þátt í uppbyggingu fótboltans í Laugardal á næstu árum. Hérna í dalnum er hjartað í Reykjavík og það er heiður að tilheyra þessu félagi,“ sagði hann eftir undirskriftina.

Heimild: Vefur Þróttar